með því að nota áminningu um höfundarétt þegar verk ykkar eru birt hvort sem það er á netinu, í rafrænum gagnabanka, á geisladiskum eða í prentuðu formi
Verk, sem birt eru á netinu, er einungis heimilt að lesa af skjá samkvæmt höfundalögum
... samið mál í ræðu og riti, leiksviðsverk, tónsmíðar, myndlist, byggingarlist, kvikmyndir, ljósmyndalist, nytjalist og aðrar samsvarandi listgreinar, á hvern hátt og í hverju formi sem verkið birtist
... þegar eintök af því eru með réttri heimild og í álitsverðum fjölda boðin opinberlega til sölu, láns eða leigu eða þeim er dreift til almennings með öðrum hætti. Nú er vernd verks háð því, að það hafi fyrst verið gefið út hér á landi, og telst því skilyrði þá fullnægt, ef það er gefið hér út innan 30 daga frá því, að það kom fyrst út erlendis
Fjölís er hagsmunafélag samtaka sem koma fram fyrir hönd rétthafa að verkum sem njóta höfundaréttar og nýtt eru með ljósritun eða annarri hliðstæðri eftirgerð rita.
Þann 4. ágúst s.l. var aðalfundur Fjölís haldinn á Centrum hótelinu í Aðalstræti 16. Aðalmenn í stjórn eru hinir sömu og áður og var formaður félagsins endurkjörinn.
Í aðalstjórn Fjölís eru því; Jón Yngvi Jóhannsson, formaður, Halldór Birgisson, Knútur Bruun, Kristín Steinsdóttir, Hjálmar Jónsson og Kjartan Ólafsson.
Varamenn í stjórn Fjölís eru: Guðbjörg Pálsdóttir, Kristján B. Jónasson, Ragnar Th. Sigurðsson, Jón Kalman Stefánsson, Arndís Þorgeirsdóttir og Jakob Frímann Magnússon.
Þeir Kristinn og Jakob eru nýir stjórnarmenn og taka sæti Gunnars H. Ingimundarsonar og Gunnars Stefánssonar fyrir hönd Félags íslenskra bókaútgefenda og Stefs.
Skýrslu stjórnar má finna hér.
Efni heimasíðu Fjölís er verndað af höfundarétti. Heimilt er án endurgjalds að vista efni heimasíðunnar á rafrænan hátt, prenta það, fjölfalda og dreifa. Heimild til slíkrar eintakagerðar er þó bundin því skilyrði að þess sé getið hvaðan efnið sé sótt (gjarnan með vísun í veffang Fjölís www.fjolis.is) og höfundar getið (ef það kemur fram á heimasíðunni). Sérstaka heimild þarf til breytingar eða þýðingar á efni sem tekið er af vefsíðunni. Fjölís vill gjarnan fá tilkynningu ef heimasíðan er sett á tengil.