Friday, May 18, 2012
Click to navigate!
Gætið höfundaréttar ykkar...

með því að nota áminningu um höfundarétt þegar verk ykkar eru birt hvort sem það er á netinu, í rafrænum gagnabanka, á geisladiskum eða í prentuðu formi

Click to navigate!
Verk á netinu

Verk, sem birt eru á netinu, er einungis heimilt að lesa af skjá samkvæmt höfundalögum

Click to navigate!
Til bókmennta og lista teljast...

... samið mál í ræðu og riti, leiksviðsverk, tónsmíðar, myndlist, byggingarlist, kvikmyndir, ljósmyndalist, nytjalist og aðrar samsvarandi listgreinar, á hvern hátt og í hverju formi sem verkið birtist

Click to navigate!
Verk telst gefið út...

... þegar eintök af því eru með réttri heimild og í álitsverðum fjölda boðin opinberlega til sölu, láns eða leigu eða þeim er dreift til almennings með öðrum hætti. Nú er vernd verks háð því, að það hafi fyrst verið gefið út hér á landi, og telst því skilyrði þá fullnægt, ef það er gefið hér út innan 30 daga frá því, að það kom fyrst út erlendis

Click to navigate!
Við stöndum vörð um þinn hag og þín réttindi




Hvað er Fjölís?
Minimize

Fjölís er hagsmunafélag samtaka sem koma fram fyrir hönd rétthafa að verkum sem njóta höfundaréttar og nýtt eru með ljósritun eða annarri hliðstæðri eftirgerð rita.


Hlutverk Fjölís
Minimize

Höfundaréttur samkvæmt lögum nr. 73/1972

Samkvæmt 1. mgr. 1. gr. höfundalaga nr. 73/1972 með síðari breytingum á höfundur að bókmenntaverki eða listaverki eignarrétt á því. Til bókmennta og lista teljast samið mál í ræðu og riti, leiksviðsverk, tónsmíðar, myndlist, byggingarlist, kvikmyndir, ljósmyndalist, nytjalist og aðrar samsvarandi listgreinar, á hvern hátt og í hverju formi sem verkið birtist. Nýtur höfundur einkaréttar til að gera eintök af verki sínu, sbr. 3. gr. l. nr. 73/1972, með þröngri undantekningu í 1. mgr. 11. gr. laganna um gerð eintaka til einkanota eingöngu. Til að öðlast heimild til ljósritunar eða annarrar hliðstæðrar eftirgerðar verka umfram það sem kveðið er á um í 1. mgr. 11. gr., er nauðsynlegt að fá samþykki viðkomandi höfunda og útgefenda verka. Án slíks samþykkis er ljósritun ólögleg og er refsiverð skv. VII kafla höfundalaga og hefur í för með sér skaðabótaskyldu skv. 56. gr. sömu laga.

Það getur reynst erfitt og tímafrekt að hafa upp á einstökum höfundum og útgefendum og oft á tíðum er það ómögulegt. Til að koma til móts við þörf atvinnulífs og almennings til ljósritunar umfram heimild til ljósritunar til einkanota er kveðið á um það í 15. gr. a) höfundalaga að hægt sé að afla sér heimildar til ljósritunar eða hliðstæðrar eftirgerðar verka til afnota í starfsemi sinni með samningum við samtök höfundaréttarfélaga sem annast hagsmunagæslu fyrir verulegan hluta íslenskra höfunda á því sviði og hlotið til þess lögformlega viðurkenningu menntamálaráðuneytisins. Þessi heimild tekur einnig til verka höfunda sem ekki eru félagar í viðkomandi samtökum. Hver einstakur höfundur getur þó lagt skriflegt bann við fjölföldun verka sinna samkvæmt þessari grein laganna.

Umboð Fjölís samkvæmt höfundalögum

Fjölís annast hagsmunagæslu fyrir meirihluta íslenskra höfunda og útgefenda á sviði fjölföldunar skv. 15. gr. a) höfundalaga og hefur hlotið til þess lögformlega viðurkenningu menntamálaráðuneytisins. Sú viðurkenning felur það í sér, m.a. skv. 3. mgr. 15. gr. a) höfundalaga, að Fjölís er ábyrgt fyrir öllum þeim kröfum sem fram kunna að koma frá handhöfum höfundaréttar sem ekki eru félagar í samtökunum og réttmætt tilkall eiga til greiðslu fyrir fjölföldun og verða slíkar kröfur aðeins gerðar á hendur samtökunum.
Gegnum þátttöku í IFRRO (International Federation of Reproductions Rights Organizations) hefur Fjölís aflað sér umboðs fyrir erlenda rétthafa frá eftirtöldum löndum og annast samsvarandi hagsmunagæslu fyrir þá og fyrir íslenska rétthafa: Noregur, Kanada (ensku- og frönskumælandi), Finnland, Sviss, Þýskaland, Svíþjóð, Spánn, Ástralía, Frakkland, Danmörk, Stóra-Bretland, Nýja Sjáland, Írland, Færeyjar, Grikkland, Slóvakía, Zimbabwe, Tékkland, Belgía, Hong Kong, Argentína.
 

Saga Fjölís
Minimize

Upplýsingar um sögu Fjölís munu birtast hér.


Efni heimasíðu Fjölís er verndað af höfundarétti.
Heimilt er án endurgjalds að vista efni heimasíðunnar á rafrænan hátt, prenta það, fjölfalda og dreifa. Heimild til slíkrar eintakagerðar er þó bundin því skilyrði að þess sé getið hvaðan efnið sé sótt (gjarnan með vísun í veffang Fjölís
www.fjolis.is) og höfundar getið (ef það kemur fram á heimasíðunni).
Sérstaka heimild þarf til breytingar eða þýðingar á efni sem tekið er af vefsíðunni.
Fjölís vill gjarnan fá tilkynningu ef heimasíðan er sett á tengil.

Privacy Statement  |  Terms Of Use
Copyright 2009 by DotNetNuke Corporation
);