Samningur
um fjölföldun verka
sem njóta höfundarréttarverndar
I. Aðild
1. gr.
Aðilar samnings þessa eru annars vegar , hér eftir nefndur leyfishafi, og Fjölís, kt. 491285-0289, Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík, hagsmunafélag samtaka, sem koma fram fyrir hönd rétthafa að verkum sem njóta höfundaréttarverndar og nýtt eru með ljósritun og annarri hliðstæðri eftirgerð rita, hins vegar.
II. Gildissvið samnings
2. gr.
Samningurinn tekur til ljósritunar og annarrar hliðstæðrar eftirgerðar verka, sem höfundaréttarverndar njóta og sem fram fer innan vébanda leyfishafa.
Afritun á glærur og skyggnur telst eftirgerð hliðstæð ljósritun í samningi þessum.
Samningurinn tekur ekki til fjölföldunar með öðrum hætti, svo sem með upptöku verka á hljóðrit, myndbönd eða kvikmyndir.
Samningur þessi tekur því aðeins til erlendra verka að Fjölís hafi aflað sér umboðs frá samtökum í viðkomandi landi til að fara með réttindi, sem samningur þessi tekur til, hér á landi og þau samtök njóti viðurkenningar í heimalandi sínu og innan IFRRO (International Federation of Reproduction Rights Organizations). Skrá yfir slík umboð Fjölís fylgir samningi þessum, merkt fylgiskjal A.
3. gr.
Samningur þessi tekur til útgefinna rita.
Með ritum er í samningi þessum átt við hina efnislegu formheild eða eintak verks, svo sem bók, bækling, tímaritshefti, tölublað dagblaðs og nótnahefti.
Með útgefnu riti er í samningi þessum átt við eintök af bókmenntaverkum, listaverkum, ljósmyndum, nótum, sem birtar hafa verið skriflega, leiksviðsverkum, sem birt hafa verið skriflega, svo og skrár, töflur og sambærileg verk á prenti. Kennslubækur og kennslugögn, sem dreift hefur verið til bekkjardeildar eða sambærilegrar einingar, teljast útgefin samkvæmt samningi þessum.
Hver einstakur höfundur getur þó lagt bann við slíkri fjölföldun og ber Fjölís þá jafnframt að tilkynna leyfishafa um þá ákvörðun.
4. gr.
Hver nótnasíða jafngildir samkvæmt samningi þessum fimm blaðsíðum, hver dagblaðssíða þremur blaðsíðum, hver ljóðasíða þremur blaðsíðum og hver síða leiksviðsverks tveimur blaðsíðum.
Ef texti fylgir nótum á sömu síðu skal greiða sérstaklega fyrir textann eftir því sem við á.
Fyrir hverja mynd, teikningu eða uppdrátt skal greiða sérstaklega til viðbótar greiðslur fyrir texta, sem á síðu er, enda sé ekki aðeins um myndatexta að ræða.
Með fjölfaldaðri síðu samkvæmt samningi þessum er átt við síðu af stærðinni A4. Sé fjölfaldað á stærri síðu en A4 reiknast hver byrjuð síða sem jafngildir síðu af stærðinni A4 sem heil fjölfölduð síða.
Hver glæra jafngildir 50 A4 síðum og hver skyggna 100 A4 síðum.
Fyrir hverja ljósritaða síðu úr bók, tímariti eða sambærilegu verki skal greiða sérstaklega, jafnvel þótt tvær síður eða fleiri séu á sama ljósriti.
5. gr.
Samkvæmt samningi þessum er starfsmönnum leyfishafa og þeim sem eiga aðild að nefndum, stjórnum og ráðum á vegum leyfishafa, heimil fjölföldun, til nota innan fyrirtækisins, með þeim takmörkunum sem í samningnum greinir.
Við fjölföldun skal nota þau tæki sem til eru innan fyrirtækisins.
Fjölföldun utan fyrirtækisins er einungis heimil ef tæknilegar aðstæður krefjast þess eða ef sá sem annast fjölföldun fyrir leyfishafa hefur gildandi samning við Fjölís.
6. gr.
Fjölföldun samkvæmt samningi þessum er eingöngu heimil til viðbótar og fyllingar öðru efni en er ekki ætlað að koma í stað útgefinna rita sem gera má ráð fyrir að leyfishafi eigi eða hafi aðgang að.
Heimilt er að fjölfalda efni fyrir þátttakendur í kennslu á vegum leyfishafa sem samningur Fjölís og menntamálaráðuneytisins um fjölföldun verndaðra verka í skólum nær ekki yfir.
Aðeins má fjölfalda stutta þætti úr hverju riti og 20% hið mesta eða 30 blaðsíður.
Fjölföldun er aðeins heimil til bráðabirgðanota og því ekki til geymslu í birgðum.
Samningurinn heimilar ekki fjölföldun sem talist getur útgáfa og gera skal útgáfusamning um. Fjölföldun efnis til dreifingar meðal almennings telst útgáfa og er því ekki leyfileg.
7. gr.
Samningur þessi heimilar ekki fjölföldun á nótum til nota í kórum og hljómsveitum.
8. gr.
Í hvert skipti sem ljósrit er gert skal jafnframt taka ljósrit af þeirri síðu viðkomandi verks, sem veitir upplýsingar um útgefanda, höfund og annað slíkt eða tryggt með öðrum hætti að upplýst sé um útgefanda, útgáfustað, útgáfuár, höfund o.þ.h.
III. Gildistími samnings
9. gr.
Samningur þessi gildir í eitt ár frá 1. janúar 2001 til 31. desember 2001.
10. gr.
Samningurinn framlengist sjálfkrafa um eitt ár í senn sé honum ekki sagt upp skriflega tveimur mánuðum fyrir lok samningstímabils.
IV. Gjaldskyldur blaðsíðufjöldi
11. gr.
Fyrir fjölföldun samkvæmt samningi þessum greiðir leyfishafi gjald í samræmi við gjaldskrá sem ákveðin er af Fjölís. Tekur hún mið af fjölda síðna sem greitt er fyrir. Gjaldskráin telst hluti samnings þessa. Gjaldskráin er endurskoðuð árlega og tekur breytingum í samræmi við breytingar á lánskjaravísitölu. Greitt er fyrir xxx bls. á ári
12. gr.
Gjaldskyldur blaðsíðufjöldi ákvarðast af leyfishafa í samráði við Fjölís. Fari fjöldi fjölfaldaðra síðna fram úr því sem greint var við undirritun samningsins skal leyfishafi hafa frumkvæði að því að greiða Fjölís fyrir umframsíður.
13. gr.
Leyfisgjald kemur í fyrsta sinn til greiðslu fyrir árið í ár við undirritun samningsins og þaðan í frá 1. febrúar árlega. Fjölís sér um innheimtu gjaldsins.
V. Kynning á efni samnings
14. gr.
Leyfishafi skuldbindur sig til að kynna efni samnings þessa árlega fyrir starfsmönnum sínum og öðrum þeim sem rétt hafa samkvæmt honum, þ.e. þá þætti hans sem lúta að því hvaða leyfi Fjölís veitir til eftirgerðar.
VI. Könnun
15. gr.
Fjölís áskilur sér rétt til að láta fara fram könnun á samningstímanum á umfangi fjölföldunar þeirrar á vegum leyfishafa sem samningur þessi nær til og skiptingu hennar eftir efnisflokkum, uppruna og löndum.
VII. Utanaðkomandi kröfur
16. gr.
Fjölís ábyrgist allar kröfur, sem kunna að koma frá handhöfum höfundaréttar, eða höfundaréttarsamtökum, sem standa utan Fjölís og réttmætt tilkall eiga til greiðslu fyrir ljósritun verndaðra rita.
_______________2001
F.h. Fjölís F.h.
_____________________ ________________________