með því að nota áminningu um höfundarétt þegar verk ykkar eru birt hvort sem það er á netinu, í rafrænum gagnabanka, á geisladiskum eða í prentuðu formi
Verk, sem birt eru á netinu, er einungis heimilt að lesa af skjá samkvæmt höfundalögum
... samið mál í ræðu og riti, leiksviðsverk, tónsmíðar, myndlist, byggingarlist, kvikmyndir, ljósmyndalist, nytjalist og aðrar samsvarandi listgreinar, á hvern hátt og í hverju formi sem verkið birtist
... þegar eintök af því eru með réttri heimild og í álitsverðum fjölda boðin opinberlega til sölu, láns eða leigu eða þeim er dreift til almennings með öðrum hætti. Nú er vernd verks háð því, að það hafi fyrst verið gefið út hér á landi, og telst því skilyrði þá fullnægt, ef það er gefið hér út innan 30 daga frá því, að það kom fyrst út erlendis
Fjölís er hagsmunafélag samtaka sem koma fram fyrir hönd rétthafa að verkum sem njóta höfundaréttar og nýtt eru með ljósritun eða annarri hliðstæðri eftirgerð rita.
Eitt meginviðfangsefni Fjölís er að gera samninga við stofnanir, félög og fyrirtæki um endurgjald fyrir ljósritun úr vernduðum verkum. Höfundalög kveða á um að ekki megi ljósrita úr útgefnum ritum nema með leyfi höfunda. Undantekning þar á er ljósritun til einkanota. Ljósritun sem gerð er vegna starfa á vegum skóla, fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka, telst ekki til einkanota og því þarf annað hvort leyfi einstakra höfunda til ljósritunar eða samning við FJÖLÍS. Lagalegt samningsumboð Fjölís er að finna í 15. gr. a höfundalaga nr. 73/1972.
Samningur Fjölís og menntamálaráðuneytisins um ljósritun í skólum er á heimasíðu menntamálaráðuneytisins, sjá HÉR
Efni heimasíðu Fjölís er verndað af höfundarétti. Heimilt er án endurgjalds að vista efni heimasíðunnar á rafrænan hátt, prenta það, fjölfalda og dreifa. Heimild til slíkrar eintakagerðar er þó bundin því skilyrði að þess sé getið hvaðan efnið sé sótt (gjarnan með vísun í veffang Fjölís www.fjolis.is) og höfundar getið (ef það kemur fram á heimasíðunni). Sérstaka heimild þarf til breytingar eða þýðingar á efni sem tekið er af vefsíðunni. Fjölís vill gjarnan fá tilkynningu ef heimasíðan er sett á tengil.