Friday, May 18, 2012
Click to navigate!
Gætið höfundaréttar ykkar...

með því að nota áminningu um höfundarétt þegar verk ykkar eru birt hvort sem það er á netinu, í rafrænum gagnabanka, á geisladiskum eða í prentuðu formi

Click to navigate!
Verk á netinu

Verk, sem birt eru á netinu, er einungis heimilt að lesa af skjá samkvæmt höfundalögum

Click to navigate!
Til bókmennta og lista teljast...

... samið mál í ræðu og riti, leiksviðsverk, tónsmíðar, myndlist, byggingarlist, kvikmyndir, ljósmyndalist, nytjalist og aðrar samsvarandi listgreinar, á hvern hátt og í hverju formi sem verkið birtist

Click to navigate!
Verk telst gefið út...

... þegar eintök af því eru með réttri heimild og í álitsverðum fjölda boðin opinberlega til sölu, láns eða leigu eða þeim er dreift til almennings með öðrum hætti. Nú er vernd verks háð því, að það hafi fyrst verið gefið út hér á landi, og telst því skilyrði þá fullnægt, ef það er gefið hér út innan 30 daga frá því, að það kom fyrst út erlendis

Click to navigate!
Við stöndum vörð um þinn hag og þín réttindi




Hvað er Fjölís?
Minimize

Fjölís er hagsmunafélag samtaka sem koma fram fyrir hönd rétthafa að verkum sem njóta höfundaréttar og nýtt eru með ljósritun eða annarri hliðstæðri eftirgerð rita.


Tekjur og gjöld
Minimize

Tekjur

Tekjur vegna skólasamningsins eru sem fyrr stærsti einstaki tekjuliður vegna samninga Fjölís. Greiðslur samkvæmt flestum samningum eru nokkuð reglubundnar en fyrir liggur að semja þarf við sveitarfélögin öll og háskólana þar sem samningar eru útrunnir.  Erfiðlega hefur gengið að fá einstakar greiðslur samkvæmt einstökum samningum við kóra og tónlistarskóla. Á  árinu 2011 komu inn greiðslur frá háskólastiginu, vegna stafræna samningsins sem undirritaður var á  2008 og námu greiðslur vegna samningsins rúmum 15,6 milljónum króna árið 2011. Þá var samið sérstaklega við Stjórnarráðið um tímabundna framlengingu samnings og lækkun eftir efnahagshrunið en greiðslur lækkuðu um kr. 200.000 á milli áranna 2010 og 2011.

 

Tekjur voru annars eins og að neðan greinir:

                                                                                          2011                2010 

                                                                                               kr.                 kr.      

Grunn-, framhalds- og -háskólar

51.500.000

55.300.000

 

 

Stjórnarráð Íslands og stofnanir þess

8.400.000

8.600.000

 

 

Ríkisstofnanir

63.777

63.083

 

 

Reykjavíkurborg

4.213.543

4.002.145

 

 

Sveitarfélög utan Reykjavíkur [1]

2.489.400

6.998.849

 

 

Kirkjuráð

1.758.766

1.670.527

 

 

Tónlistarskólar utan sveitarfélaga

2.554.519

2.303.783

 

 

Einkaskólar

797.518

669.830

 

 

Kórar

1.196.528

1.200.310

 

 

Samningur við háskóla um stafræna eintakagerð [2]

15.657.914

15.193.754

 

 

Samtals tekjur vegna samninga

88.631.965

96.002.278

 

 

           

Vextir                                                                                    400.863        1.055.790

Fjármagnstekjuskattur                                                         - 80.171          -189.003

                                              320.692            861.026             

Samtals tekjur                                                  88.952.657   96.863.304                                                                                                                               

Gjöld

                                                                       2011                              2010

 

Rekstrarkostnaður                                      8.610.946                    9.089.154       

           

Kostnaður sem hlutfall af reglulegum tekjum nam 9,76% árið 2011 (9,47% 2010 og 13% árið 2009).

 


Efni heimasíðu Fjölís er verndað af höfundarétti.
Heimilt er án endurgjalds að vista efni heimasíðunnar á rafrænan hátt, prenta það, fjölfalda og dreifa. Heimild til slíkrar eintakagerðar er þó bundin því skilyrði að þess sé getið hvaðan efnið sé sótt (gjarnan með vísun í veffang Fjölís
www.fjolis.is) og höfundar getið (ef það kemur fram á heimasíðunni).
Sérstaka heimild þarf til breytingar eða þýðingar á efni sem tekið er af vefsíðunni.
Fjölís vill gjarnan fá tilkynningu ef heimasíðan er sett á tengil.

Privacy Statement  |  Terms Of Use
Copyright 2009 by DotNetNuke Corporation
);