Samningur um stafræna eintakagerð í háskólum
Árið 2008 var undirritaður samningur við háskólastigið um stafræna eintakagerð í háskólum. Samningurinn var til þriggja ára og gilti frá haustmisseri 2009. Grunnfjárhæð samningsins var kr. 12.000.000.- verðtryggð miðað við vísitölu neysluverðs. Sá samningur rann út í maí 2011 en var framlengdur óbreyttur til vors 2012 með undirskrift þar um á fundi formanns Fjölís með rektorum háskólanna, haustið 2011 þar sem jafnframt var ákveðið að framkvæma könnun þá sem upphaflegur samningur kveður á um. S.k. sex manna nefnd sem hefur á að skipa fulltrúum háskólanna og Fjölís ákveður verklag varðandi könnunina. Nefndin hefur ekki komið saman þar sem erfiðlega hefur gengið að fá háskólana til að endurmanna nefndina af sinni hálfu nú á vormánuðum.
Samningar um ljósritun
- Samningur við menntamálaráðuneytið um ljósritun í skólum framlengist um eitt ár í senn frá 1. september 2005. Veturinn 2011-2012 hófust samningaviðræður um uppfærslu samninga þannig að þeir nái yfir stafræna notkun líka. Málið er til umfjöllunar innan ráðuneytisins nú á vormánuðum 2012. Endurgjald Fjölís vegna samningsins er 53.200.000 kr. skv. fjárlögum 2012.
- Stjórnarráðssamningurinn við fjármálaráðuneytið var framlengdur 2004 og rann út í árslok 2009. Stjórn Fjölís samþykkti tilboð ráðuneytisins um framlengingu samningsins til eins árs, með lækkun sem svarar um 20% fyrir árið 2010 sem skilaði 8,6 milljón króna greiðslu. Samið var sérstaklega um enn meiri lækkun eða samtals 8,4 milljónir fyrir árið 2011 en þessir samningar um lækkun á greiðslum eru gerðir í ljósi efnahagsástandsins í samfélaginu í kjölfar hrunsins 2008. Markaðar tekjur á fjárlögum ársins 2012 er 8.500.000 kr. vegna samningsins.
- Samningar við einstakar ríkisstofnanir.
Samningar við Íbúðalánasjóð og Byggðastofnun gilda til 31. desember 2013.
- Samningur við Reykjavíkurborg. Samningurinn rann út í árslok 2006 og var framlengdur til 5 ára, til ársloka 2011. Hann hefur ekki verið endurnýjaður.
- Samningar við sveitarfélög. Samningarnir voru framlengdir í desember 2008 og giltu því til 31. desember 2010. Sveitarfélögum var undir lok árs 2011 boðinn óbreyttur samningur skv. ákvörðun stjórnar þar um. Fimmtán sveitarfélög þáðu slíkan samning. Nú standa yfir samningaviðræður við Samband íslenskra sveitarfélaga um gerð rammasamnings til viðmiðunar en ljóst þykir að greiðslur vegna einhverra samninga hafa tapast vegna rofs sem varð þegar samningar voru ekki endurnýjaðir strax þegar að þeir runnu út.
- Kirkjuráðssamningur. gilti til ársloka 2007 og var rætt við forstöðumann Kirkjuráðs um framlengingu. Samningurinn framlengist sjálfkrafa frá ári til árs.
- Samningar við tónlistarskóla. Samkvæmt ákvæði samninganna framlengjast þeir um eitt ár í senn, nema annar hvor aðila tilkynni uppsögn skriflega til hins með sex mánaða fyrirvara, fyrir 1. mars ár hvert. Hvor aðili í samráði við hinn getur krafist þess að könnun fari fram á samningstímanum. Samningarnir eru sextán talsins
- Samningar við einkaskóla. Þessir samningar framlengjast almennt um eitt ár í senn, nema þeim sé sagt upp skriflega tveimur mánuðum fyrir lok samningstímabilsins, sem ýmist er í árslok eða á undirskriftardegi samnings. Samningarnir eru átta talsins.
- Samningar við kóra. Samningar eru í gildi við um 24 kóra á grundvelli samningsfyrirmyndar Fjölís og SÍK, og Fjölís og Gígjunna. Samningarnir framlengjast um eitt ár í senn, nema annar hvor aðila segi samningnum upp.
Samningar í bígerð
Stóru háskólasöfnin hafa óskað eftir samningi um stafræn millisafnalán og var haldinn fundur vegna þess í október 2011. Framkvæmdastjóri Fjölís hefur þegar samið drög að slíkum samningi.
Gagnkvæmnissamningar
Framkvæmdastjóra var í mars 2012 falið að leita s.k. A hluta gagnkvæmnisamninga m.a. um stafræna notkun á höfundaréttarvörðu efni við systursamtök Fjölís innan IFRRO og semja við CCC í Bandaríkjunum en aldrei hefur verið gerður samningur við þá. Leita á samninga sem taka mið af meðaltalsnotkun nágrannalandanna þar sem ekki liggur fyrir könnun um notkun á erlendu efni hérlendis. Ákvörðunin var tekin eftir að skoðun á þýðingu þess fyrir Fjölís leiddi í ljós tekjulækkun miðað við óbreytta samninga við innlenda aðila um 15-20% ef tekið er mið af sænskum forsendum. Framkvæmdastjóri hefur þegar sent breskum og bandarískum systursamtökum erindi þessa efnis og eru samningaumleitanir þegar hafnar.