Friday, May 18, 2012
Click to navigate!
Gætið höfundaréttar ykkar...

með því að nota áminningu um höfundarétt þegar verk ykkar eru birt hvort sem það er á netinu, í rafrænum gagnabanka, á geisladiskum eða í prentuðu formi

Click to navigate!
Verk á netinu

Verk, sem birt eru á netinu, er einungis heimilt að lesa af skjá samkvæmt höfundalögum

Click to navigate!
Til bókmennta og lista teljast...

... samið mál í ræðu og riti, leiksviðsverk, tónsmíðar, myndlist, byggingarlist, kvikmyndir, ljósmyndalist, nytjalist og aðrar samsvarandi listgreinar, á hvern hátt og í hverju formi sem verkið birtist

Click to navigate!
Verk telst gefið út...

... þegar eintök af því eru með réttri heimild og í álitsverðum fjölda boðin opinberlega til sölu, láns eða leigu eða þeim er dreift til almennings með öðrum hætti. Nú er vernd verks háð því, að það hafi fyrst verið gefið út hér á landi, og telst því skilyrði þá fullnægt, ef það er gefið hér út innan 30 daga frá því, að það kom fyrst út erlendis

Click to navigate!
Við stöndum vörð um þinn hag og þín réttindi




Hvað er Fjölís?
Minimize

Fjölís er hagsmunafélag samtaka sem koma fram fyrir hönd rétthafa að verkum sem njóta höfundaréttar og nýtt eru með ljósritun eða annarri hliðstæðri eftirgerð rita.


Erlent samstarf
Minimize

Norrænt samstarf

 

Norrænn stórfundur á Borgundrhólmi

 

Formaður tók þátt í norrænum stórfundi systursamtaka Fjölís á Borgundarhólmi 15.-17. júní 2011. Á fundinum gerðu fulltrúar samtakanna grein fyrir starfseminni á árinu auk þess sem fluttir voru fyrirlestrar um rafræna útgáfu, meðferð réttinda í einkageiranum og fleiri efni. Næsti norræni stórfundur verður haldinn í ágúst.

 

 Heimsókn til KopiNor

 

Framkvæmdastjóri heimsótti systursamtök Fjölís í Osló dagana 25.-27. janúar 2012 til að fræðast um starfsemi þeirra og samninga við innlenda aðila. Fram kom að flestir þeirra samninga byggja á könnunum sem gerðar eru, ein á hverju samningstímabili. Þá var farið vandlega yfir aðferðafræði kannana, samskipti við samfélagið og samninga við systursamtök erlendis.

 

Alþjóðlegt samstarf

 

Aðalfundur IFRRO

 

Heimsþing  IFRRO var haldið í Slóveníu 24.-27. október 2011. Formaður stjórnar sótti fundinn. Formaður tók þátt í aðalfundi IFFRO og sat fyrirlestra um breytingar í alþjóðlegu lagaumhverfi innheimtusamtaka, nýjar aðferðir við útgáfu og dreifingu námsefnis í stafrænu umhverfi og fleiri áskoranir sem mæta rétthafasamtökum í nýju umhverfi.


Efni heimasíðu Fjölís er verndað af höfundarétti.
Heimilt er án endurgjalds að vista efni heimasíðunnar á rafrænan hátt, prenta það, fjölfalda og dreifa. Heimild til slíkrar eintakagerðar er þó bundin því skilyrði að þess sé getið hvaðan efnið sé sótt (gjarnan með vísun í veffang Fjölís
www.fjolis.is) og höfundar getið (ef það kemur fram á heimasíðunni).
Sérstaka heimild þarf til breytingar eða þýðingar á efni sem tekið er af vefsíðunni.
Fjölís vill gjarnan fá tilkynningu ef heimasíðan er sett á tengil.

Privacy Statement  |  Terms Of Use
Copyright 2009 by DotNetNuke Corporation
);